Almenn námskeið Starfsmenntar eru opin öllum þvert á stofnanir og starfsgreinar og ætlað að efla sjálfsagða starfshæfni eins og samskipti, tungumál og þjónustu eða dýpka þá þekkingu sem fyrir er. Einnig er hér að finna fjölda stjórnunarnámskeiða um t.d. mannauðs-, verkefna-, upplýsinga- og skrifstofustjórnun. Hér má einnig skrá sig í framsækið nám eins og fyrir Starfsfólk í stjórnunareiningum, Talsmann breytinga, Lífsbraut, Framrás, Rekspöl og fjölda námskeiða fyrir atvinnuleitendur.
Starfstengdar námsleiðir eru sérsniðnar að starfshópum og stofnunum. Hér má finna heildstæð símenntunarkerfi eins og Járnsíðu-námsleið fyrir sýslumannsembættin, Vísdóm fyrir héraðsdómstóla eða t.d. símenntun læknaritara, launafulltrúa, stuðningsfulltrúa, fangavarða, félagsliða eða Fríhafnar, ásamt brúarnámi í framhaldsskólum.
Fjarkennd tölvunámskeið Starfsmenntar hafa notið mikilla vinsælda. Þau eru bæði ætluð byrjendum og lengra komnum. Markmiðið er að efla tölvuþekkingu nemenda með kennslu á algengustu forritunum og gera þá sjálfstæða í heimi tölvutækninnar. Námskeiðin fara öll fram í fjarnámi og er hægt að velja um ársaðgang að fjölda vefnámskeiða eða níu sérhæfð námskeið með persónulegri leiðsögn á netinu.