Námslýsing
Streita er einkenni dagslegs lífs, öll upplifum við streitu. Fólk er þó mismunandi vel í stakk búið til að mæta álagi. Sumir ná að halda ró sinni í mjög krefjandi aðstæðum á meðan aðrir fara yfir strikið. Það er líka einstaklingsbundið í hve langan tíma við þolum streitu. Fyrst þegar streituástand er orðið langvarandi og farið upp fyrir streituþol okkar fer það að hafa neikvæð áhrif á frammistöðu okkar og vellíðan.Til eru nokkrar skilgreiningar á hugtakinu streita. Sumir vísa í ógnandi þætti eða atburði í umhverfinu sem hafa áhrif á okkur. Aðrir líta á streitu sem viðbragð líkamans við álagi og streituvaldandi aðstæðum. Viðbrögðin eru mismunandi eftir aðstæðum og einstaklingsbundin. Streita hefur einnig verið skilgreind sem afleiðing misheppnaðs samspils á milli krafna, ógnana og breytinga í umhverfinu annars vegar og hæfni einstaklingsins til að takast á við þær hins vegar. Streita tengist þá því hvernig einstaklingur aðlagar sig nýjum og truflandi atburðum og aðstæðum.
Á námskeiðinu greina þátttakendur eigin streituviðbrögð og streituþol. Fyrsta skrefið við að ná tökum á streitu er að þekkja eigin streituviðbrögð og vita hversu mikið álag við þolum. Þeir sem eru ekki meðvitaðir um eigið tilfinningalegt ástand eru ekki líklegir til að geta stjórnað því. Síðan er farið í markvissar aðferðir til að stjórna og meðhöndla streitu og álagi.
Markmið
- Að fá innsýn í eigin streituviðbrögð.
- Auka færni í að takast á við streitu og álag.
- Að auka þekkingu á leiðum til að auka streituþol.
- Auka færni til að nýta streitu á uppbyggjandi hátt.
- Að auka ánægju í starfi og einkalífi.
- Að vera meðvitaðri um heilbrigðari lífstíll.
Dagskrá
Dagsetning | Námsþáttur | Tími frá | Tími til | Kennari |
---|---|---|---|---|
06.11.2017 | Mismunandi einkenni streitu. Ástæður streitu. Streituþol. Tengsl hugsana og hegðunar. Að takast á við mótlæti. Að taka ábyrgð á sjálfum sér. | 09:00 | 12:00 | Ingrid Kuhlman |
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Tengiliður námskeiðs

Björg Valsdóttir
bjorg@smennt.is
550-0060
Staður og stund
Félagsheimili Patreksfjarðar, Aðalstræti 117, 450 Patreksfirði.
6. nóvember frá kl. 09:00 - 12:00.
Umsjón
Ingrid Kuhlman, M.A. Diplóma í jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Samstarfsaðilar
Fræðslumiðstö Vestfjarða.
Gott að vita
Námskeiðið er fyrir alla sem telja sig hafa gagn af námskeiðinu.
Mat
Mæting.