Námslýsing
Skráningarfrestur framlengdur til 18. apríl!Frábært námskeið fyrir alla sem vilja taka sín fyrstu skref í Photoshop. Þú ferð í gegnum 10 verkefni þar sem þú lærir á lykilverkfæri í Photoshop. Þetta námskeið er byggt á spennandi verkefnavinnu s.s. að fjarlægja eða hluti af myndum, hreinsa bletti eða bólur af andlitsmyndum, breyta bakgrunni og margt fleira.
Námsþættir:
- Hreinsa út bletti og bólur af andlitsmyndum.
- Fjarlægja fólk eða hluti af mynd.
- Færa hluti eða fólk á mynd.
- Lagfæringar og litajöfnun.
- Síur og lög.
- Breyta bakgrunni.
- Myndvinnsla fyrir ólíka miðla.
Athugið að í upphafi er ein vika notuð til undirbúnings en kennsla hefst í upphafi næstu viku á eftir. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi almenna þekkingu á tölvunotkun.
Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar.
Markmið
- Hreinsa út bletti og bólur af andlitsmyndum.
- Fjarlægja fólk eða hluti af mynd.
- Færa hluti eða fólk á mynd.
- Lagfæringar og litajöfnun.
- Síur og lög.
- Breyta bakgrunni.
- Myndvinnsla fyrir ólíka miðla.
Dagskrá
Dagsetning | Námsþáttur | Tími frá | Tími til | Kennari |
---|---|---|---|---|
18.04.2018 | Hreinsa út bletti og bólur af andlitsmyndum. Fjarlægja fólk eða hluti af mynd. Færa hluti eða fólk á mynd. Lagfæringar og litajöfnun. | 23:59 | 23:59 | Bjartmar Þór Hulduson |
17.04.2018 | Síur og lög. Helstu verkfæri Photoshop. Breyta bakgrunni. Myndvinnsla fyrir ólíka miðla. | 23:59 | 23:59 | Bjartmar Þór Hulduson |
24.04.2018 | Helstu grunnverkfæri Photoshop + aukaæfingar. | 23:59 | 23:59 | Bjartmar Þór Hulduson |
Fyrirkomulag
Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem nemendur fá þriggja vikna stuðningstíma að því loknu. Aðgangur að námsefni er þó opinn allt skólaárið.Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma, 533 4004, sem er opinn 10-20 virka daga.
Tengiliður námskeiðs

Bergþóra Guðjónsdóttir
bergthora@smennt.is
550 0060
Staður og stund
Vefnámskeið.
10. apríl. Námskeiðið stendur í 3 vikur.
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
Samstarfsaðilar
Tölvuskólinn Nemandi.is.
Gott að vita
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.