Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks

Hvernig er hægt að stuðla að vellíðan fólks á vinnustað og auðvelda einstaklingum að ná árangri?

Á þessu námskeiði verður fjallað um líðan, heilsu og öryggi starfsfólks út frá fræðum gæðastjórnunar og vinnuverndar. Fjallað verður um félagslega og sálræna þætti sem og vinnuaðstöðu. Eins hvernig hæfni einstaklinga er metin og hvernig henni er viðhaldið.

Viðhorf starfsfólks til sinna daglegu starfa og umhverfis síns leggur grunn að góðri starfsemi skipulagsheilda. Göngum glöð til starfa alla daga!

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvað er góður vinnustaður í gæðastjórnunarfræðum?
  • Heilsu – Öryggi - Umhverfi.
  • Viðhorf starfsfólks.
  • Skýrar starfslýsingar.
  • Að þekkja hlutverk sitt, að þekkja hlutverk annarra.

Hæfniviðmið

Að auka starfsgleði og jákvæð viðhorf

Að öðlast hugmyndir og færni til að efla vinnustaðinn

Að öðlast innsýn inn í vinnuverndarhugsun og sjónarhorn gæðastjórnunar

Fyrirkomulag

Fyrirlestur. Stuðst verður við viðeigandi kafla í ISO 9001 Gæðastjórnunarkerfi kröfur og efni frá Vinnueftirliti ríkisins. Bent verður á fróðleik á netinu og tekin dæmi úr atvinnulífinu.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    17. október 2024, kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur 2. október kl.10.00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Ólafsdóttir, M.Sc. í viðskiptafræði
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Zoom
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll, en ekki síst gæðastjóra, öryggisstjóra, mannauðsstjóra og stjórnendur, sem eru að hlúa að góðri vinnustaðamenningu, ýta undir gleði og góða samvinnu.
  • Gott að vita

    Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.

  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
17.10.2024Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks09:0012:00Guðrún Ólafsdóttir