Akra | Viðfangalíkanið
Viðfangavídd AKRA kerfisins byggir á upplýsingum í ORRA en notendur geta haft áhrif á það hvernig viðfangavíddin er sett upp í áætlanakerfinu. Hér er fjallað er um tilgang og virkni viðfangalíkansins, útskýrt hvernig viðföng eru skilgreind og hvernig hægt er að bæta samtölum við viðfangavíddina í AKRA. Skilgreind verða viðföng og samtölur í AKRA fyrir dæmigerða stofnun.
Hæfniviðmið
Að þátttakendur þekki hvernig viðfangalíkanið virkar
Fyrirkomulag
Fyrirlestur.
Upptaka verður gerð aðgengileg á „Mínar síður“ eins fljótt og mögulegt er eftir að námskeiðinu lýkur.
Helstu upplýsingar
- Tími24. september 2024, kl. 13.00 - 14.00. Skráningu lýkur kl. 11.00 sama dag
- Lengd1 klst.
- UmsjónIngvi Þór Elliðason
- StaðsetningVefnámskeið á rauntíma, kennt á Teams
- TegundStreymi
- Verð6.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem eru ábyrg fyrir undirbúningi og gerð rekstraráætlana
- Gott að vita
Þetta námskeið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna getur látið senda reikning á Starfsþróunarsetrið og gefið upp kennitölu þess 500611-0730 sem greiðanda. Athugið að ekki er nóg að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.
Ef einstaklingur sem skráir sig á námskeiðið er hvorki aðildarfélagi Starfsmenntar né Starfsþróunarsetursins getur viðkomandi beðið um að reikningur verði sendur á stofnunina sem unnið er hjá og gefur þá upp kennitölu stofnunar.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
24.09.2024 | Rekstraráætlanir ríkisaðila - Viðfangalíkanið | 13:00 | 14:00 | Ingvi Þór Elliðason |