Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!
Skráningu lýkur 6. september kl. 10:00.
Góð og uppbyggjandi vinnustaðamenning er grunnur að vellíðan í starfi. Jákvæð vinnustaðamenning getur haft mikil áhrif á starfsánægju, helgun og þar af leiðandi betri frammistöðu fyrirtækja og stofnana. Jákvæð menning á vinnustað spilar stærstan þátt í því að halda í gott starfsfólk.
Á þessu námskeiði verður fjallað um mikilvægi uppbyggjandi vinnustaðamenningar og leitast við að skapa meðvitund um það hvernig hver og einn getur haft áhrif á þróun hennar.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Hvað er vinnustaðamenning?
- Hvað einkennir góða vinnustaðamenningu?
- Hvað getur hver og einn starfsmaður gert til að efla vinnustaðamenningu?
- Hvað segja rannsóknir um vinnustaðamenningu?
Ávinningur þinn:
- Þekking og meðvitund um mikilvægi vinnustaðamenningar.
- Betri frammistaða fyrirtækis/stofnunar.
- Liður í að auka starfsánægju.
- Betri stjórnun.
Fyrirkomulag
Æfingar, dæmi og umræðurHelstu upplýsingar
- TímiMiðvikudagur 21. september kl. 09:00 - 12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónGuðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir, sérfræðingar og ráðgjafar í mannauðsmálum og eigendur AUKI - mannauður og stjórnendaráðgjöf.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er fyrir stjórnendur og alla þá sem vilja hafa jákvæð áhrif á vinnustaðamenninguna á sínum vinnustað.
- Gott að vitaEingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
21.09.2022 | Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli! | 09:00 | 12:00 | Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir |