SSH | Mótlæti og seigla

Fjallað er um hvernig megi ýta undir jákvætt hugarfar og bjartsýni.

Lögð er áhersla á mikilvægi þess að líta á krefjandi viðfangsefni og aðstæður sem möguleg tækifæri. Jafnframt er fjallað um mismunandi viðbrögð fólks við erfiðum aðstæðum og hagnýtar aðferðir til að takast á við þær. 

Hæfniviðmið

Að auka þekkingu á hagnýtum aðferðum til að takast á við álag og andstreymi.

Að líta á krefjandi viðfangsefni sem ögrun frekar en óleysanleg vandamál.

Að skilja mikilvægi þess að viðhalda bjartsýni.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Vefnámskeið þetta verður stillt á upptöku, upptakan verður sett að námskeiði loknu undir "mínar síður" á heimasíðu Starfsmenntar fyrir skráða þátttakendur, hún verður aðgengileg í viku.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    26. nóvember 2024, kl. 13.00 - 15.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    2 klst.
  • Umsjón
    Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP)
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Nám ætlað starfsfólki sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnes, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélag
  • Gott að vita

    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélag).

  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
26.11.2024Mótlæti og seigla13:0015:00Ingrid Kuhlman