Dómstólasýslan | Verkefnastjórnun, fyrstu skrefin
Á námskeiðinu er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst.
Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur.
Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
- Undirbúning verkefna og ræs.
- Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
- Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
- Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
- Skil og lúkning verkefna.
Hæfniviðmið
Að auka skilning á verkefnastjórnun og leiðum til betri árangurs.
Þróa hæfni í að taka við verkefnum og leysa þau.
Fyrirkomulag
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við.
Helstu upplýsingar
- Tími18. mars 2025, kl. 14.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd2 klst.
- UmsjónSveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM.
- StaðsetningVefnám í rauntíma, kennt á Teams
- TegundStreymi
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk dómstólanna
- Gott að vita
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
18.03.2025 | Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin | 14:00 | 16:00 | Sveinbjörn Jónsson |