Akra | Gerð rekstraráætlunar án launahluta
Hér fer fram kynning á áætlanaferlinu í AKRA, allt frá gerð útkomuspár og þar til áætlun hefur verið skilað til ráðuneytis. Sýnd verða ýmis atriði og möguleikar varðandi vinnu við áætlanakerfið samhliða kynningu á ferlinu sjálfu.
Útkomuspá og rekstraráætlun dæmigerðrar stofnunar verður unnin í AKRA og skilað til ráðuneytis.
Hæfniviðmið
Að geta gert rekstraráætlun án launahluta í áætlanakerfi ríkisaðila
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og spurningar og svör að honum loknum.
Upptaka verður gerð aðgengileg á „Mínar síður“ eins fljótt og mögulegt er eftir að námskeiðinu lýkur.
Helstu upplýsingar
- Tími30. september 2024, kl. 10.00 - 11.00. Skráningu lýkur kl. 9.00 sama dag
- Lengd1 klst.
- UmsjónIngvi Þór Elliðason
- StaðsetningVefnámskeið á rauntíma, kennt á Teams
- TegundStreymi
- Verð6.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem eru ábyrg fyrir gerð rekstraráætlana án launahluta
- Gott að vita
Þetta námskeið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna getur látið senda reikning á Starfsþróunarsetrið og gefið upp kennitölu þess 500611-0730 sem greiðanda. Athugið að ekki er nóg að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.
Ef einstaklingur sem skráir sig á námskeiðið er hvorki aðildarfélagi Starfsmenntar né Starfsþróunarsetursins getur viðkomandi beðið um að reikningur verði sendur á stofnunina sem unnið er hjá og gefur þá upp kennitölu stofnunar.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
30.09.2024 | Gerð rekstraráætlunar án launahluta í áætlanakerfi ríkisaðila, Akra | 10:00 | 11:00 | Ingvi Þór Elliðason |