Fjársýslan | Microsoft Teams og OneDrive for Business - Hópur 1

Microsoft Teams

Microsoft Teams er öflugt samvinnu- og samskiptatól sem hjálpar til við skipulag hópa og verkefna. Í þessu námskeiði munum við:

  • Læra hvernig Teams heldur utan um fundarboð, dagatöl, skjölun, samtöl og margt fleira. Fá yfirsýn yfir hvernig við getum notað Teams til að auðvelda okkur samvinnu og samskipti við samstarfsfólk hvar og hvenær sem er.
  • Kanna hvernig Teams stuðlar að betri stjórnun verkefna og samvinnu.
  • Fá innsýn í hvernig við getum nýtt okkur helstu eiginleika Teams til að bæta vinnuflæði og auka framleiðni.

Microsoft OneDrive for Business

Við munum einnig skoða það helsta sem OneDrive for Business býður upp á. Í þessu námskeiði munum við:

  • Skoða tilgang og grunnvirkni OneDrive for Business.
  • Ræða muninn á OneDrive Personal og OneDrive for Business.
  • Læra um samhæfingu og deilingu skjala, bæði innan og utan fyrirtækisins.
  • Kanna útgáfustýringu OneDrive og hvernig hún tryggir öryggi og aðgengi skjala.
  • Skoða muninn á OneDrive og SharePoint og skilja hvenær og hvernig við notum hvort fyrir sig.
  • Þróa færni í að nýta OneDrive til að auka skilvirkni og samstarf innan fyrirtækisins.

Hæfniviðmið

Að geta haldið utan um fundarboð, dagatöl, skjölun o.fl. með Teams

Að geta nýtt sér hagnýtar leiðir til samskipta með Teams

Að stuðla að betri stjórnun verkefna og samvinnu með Teams

Að þekkja tilgang og grunnvirkni OneDrive for Business

Að skilja muninn á OneDrive og SharePoint

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefni

Helstu upplýsingar

  • Tími
    16. september 2024, kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Hermann Jónsson, Microsoft kennari
  • Staðsetning
    Fræðslusetrið Starfsmennt, Skipholt 50 b, 3.hæð, 105 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk Fjársýslunnar
  • Gott að vita
    Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti með eigin tölvu
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
16.09.2024Microsoft Teams og OneDrive for Business09:0012:00Hermann Jónsson