Samgöngustofa | Jákvæðni og vellíðan í lífi og starfi
Góð líðan eða aukin hamingja leiðir til betri heilsu, meiri sköpunar, betri tengsla, langlífis og bættrar frammistöðu.
Á námskeiðinu verða kynntar rannsóknir jákvæðrar sálfræði á því hvað einkennir einstaklinga sem ná á farsælan hátt að þroskast og aðlagast ólíkum aðstæðum í lífi sínu.
Fjallað verður um hamingjuaukandi leiðir sem eru byggðar á rannsóknum á því hvað eykur vellíðan og hamingju.
Einnig verður rætt um hvernig vinnustaðamenning ýtir undir hamingju og vellíðan.
Hæfniviðmið
Að auka jákvæðni og gleði í lífi og starfi.
Að geta nýtt ýmsar leiðir til að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími19. desember 2023, kl. 08.30 - 10.30
- Lengd2 klst.
- UmsjónRagnhildur Vigfúsdóttir, PCC vottaður markþjálfi og Certified Dare to Lead™ Facilitator
- StaðsetningSamgöngustofa, Ármúli 2, 108 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk samgöngustofu
- Gott að vitaNámskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en Samgöngustofa greiðir fyrir aðra.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
19.12.2023 | Jákvæðni og vellíðan í lífi og starfi | 08:30 | 10:30 | Ragnhildur Vigfúsdóttir |