SSH | Nauðung í starfi með fötluðu fólki

Á námskeiðinu verður fjallað um hugtökin nauðung og þvingun út frá mismunandi sjónarhornum, svo sem lagalegum, sálfræðilegum, hagnýtum, hugmyndafræðilegum, félagslegum, læknisfræðilegum, siðferðilegum, sögulegum og sumir út frá eigin reynslu af nauðung og þvingun, annaðhvort sem gerendur eða þolendur. Fjallað verður helstu lög og reglur varðandi nauðung í starfi með fötluðum.

Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir hugtakinu nauðung í starfi og í hverju það felst.

Að geta gert grein fyrir lögum og reglum varðandi nauðung í starfi með fötluðum.

Að geta afstýrt ólögmætum árásum.

Að geta beitt öruggum leiðum til að verja sig ef þörf krefur.

Fyrirkomulag

Veffyrirlestur, upptaka verður aðgengileg skráðum þátttakendum í viku eftir að námskeiði lýkur.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    24. september 2024, kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Ástríður Erlendsdóttir, þroskaþjálfi
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Nám ætlað starfsfólki sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnes, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélag
  • Gott að vita

    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ,  Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélag).

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
24.09.2024Nauðung í starfi með fötluðu fólki13:0016:00Ástríður Erlendsdóttir