SSH | Þjónandi leiðsögn
Þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching) er hugmynda- og aðferðafræði sem byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem samskipti á milli starfsfólks og notenda eru þungamiðjan. Vinátta, umhyggja, tengsl og hvatning eru grundvallaratriði í öllum samskiptum. Skipulag og lausnir byggðar á mannlegum gildum og kærleika eru notaðar til að aðstoða fólk til þess að fá dýpri skilning á samskiptum og daglegum viðfangsefnum. Lögð er áhersla á að nálgast einstaklinginn með alúð, vináttu og umhyggju og hvetja hann til að setja sér markmið og veita aðstoð við að ná þeim.
Í fyrirlestrinum verður farið í grunnstoðir þessarar hugmyndafræði, hvernig hún nýtist í störfum okkar og hvernig hún samtvinnast við þá hugmyndafræði sem bundin er í lög- og mannréttindasáttmála sem Ísland er aðili að.
Hæfniviðmið
Að geta útskýrt og nýtt sér hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verkefni.
Vefnámskeið þetta verður stillt á upptöku, upptakan verður sett að námskeiði loknu undir "mínar síður" á heimasíðu Starfsmenntar fyrir skráða þátttakendur, hún verður aðgengileg í viku.
Helstu upplýsingar
- Tími5. febrúar 2025, kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd3 klst.
- UmsjónArne Friðrik Karlsson, sérfræðingur
- StaðsetningHúsnæði BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNám ætlað starfsfólki sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnes, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélag
- Gott að vita
Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og ÁS Styrktarfélag).
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
05.02.2025 | Þjónandi leiðsögn | 09:00 | 12:00 | Arne Friðrik Karlsson |