Árangursrík samskipti
Hér er um stutt en hnitmiðað námskeið að ræða þar sem tekin verða fyrir þau lykilatriði sem gera fólki kleift að ná hámarksárangri í samskiptum.
Samfélagið og atvinnumarkaðurinn gerir sífellt auknar kröfur til fólks um leikni í mannlegum samskiptum.
Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína og færni á því sviði.
Farið verður yfir þau atriði sem einkenna jákvæð og árangursrík samskipti og hvernig unnt er að takast á við krefjandi einstaklinga með farsælum hætti þrátt fyrir ólíkar þarfir þeirra og framkomu.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Samtalstækni og framkomu.
- Virka hlustun.
- Endurgjöf (gagnrýni/hrós).
- Krefjandi einstaklinga/samskipti.
Hæfniviðmið
Að geta beitt samtalstækni og lipurð í samskiptum.
Að auka öryggi í framkomu.
Að efla virkari hlustun.
Að auka sjálfstraust.
Fyrirkomulag
Námskeiðið byggist á fyrirlestri, umræðum og léttum æfingum.Helstu upplýsingar
- Tími7. febrúar 2024 (var upphaflega 6.2) kl. 08.30 - 12.30. Skráningu lýkur 22. janúar kl.10.00.
- Lengd4 klst.
- UmsjónJóhann Ingi Gunnarsson og Bragi Sæmundsson, sálfræðingar.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er fyrir alla þá sem vilja ná forskoti í samskiptaleikni.
- Gott að vitaEingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
07.02.2024 | Árangursrík samskipti | 08:30 | 12:30 | Jóhann Ingi Gunnarsson og Bragi Sæmundsson, sálfræðingar. |