Mannauðsstjórnunarhlutverk stjórnenda
Hagnýtt námskeið sem hentar öllum þeim sem vilja efla sig í mannauðsstjórnunarhlutverkinu.
Allir stjórnendur eru að einhverju leyti mannauðsstjórar. Hér eru hagnýtar hugmyndir til að takast á við ólíkar aðstæður sem flestir stjórnendur takast á við oftar en einu sinni á sínum ferli.
Hæfniviðmið
Að geta tekið faglega á móti nýju starfsfólki.
Að geta stjórnað fólki í fjarvinnu.
Að geta lýst höfuðáherslum í frammistöðustjórnun.
Að geta lýst hvaða þættir eru hvetjandi fyrir starfsfólk.
Að geta lýst hvernig starfsþróun á sér stað.
Að geta lokið ráðningarsambandi með faglegum hætti.
Að geta lýst eiginleikum og eðli vinnustaða framtíðarinnar.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er vefnám á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleyft að fara yfir efnið á þeim stað og tíma sem hentar.
Eftir skráningu hjá Starfsmennt þarf að bíða eftir næsta virka degi, þá kemur póstur frá Opna Háskólanum í HR sem veitir aðgang að námssvæði námskeiðisins (kennslukerfi Opna háskólans).
Ef þátttakandi er þegar skráður með aðgang hjá Opna Háskólanum í HR mun viðkomandi fá póst frá Starfsmennt til að skrá sig á námskeiðið beint hjá þeim en með greiðsluupplýsingum Starfsmenntar.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 09. október 2024, kl. 09:00 en upphafið er valfrjálst.
- Lengd1,5 klst.
- UmsjónHerdís Pála Pálsdóttir, reyndur stjórnandi, stjórnunarráðgjafi og stjórnendaþjálfi
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurHentar öllum sem vilja efla sig í mannauðsstjórnunarhlutverkinu, hvort sem þeir eru millistjórnendur, verkstjórar, verkefnisstjórar, framkvæmdastjórar og hóp- eða teymisstjórar.
- Gott að vita
Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Opna Háskólanum í HR.
- MatÁhorf
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
09.10.2024 | Mannauðsstjórnunarhlutverk stjórnenda | 09:00 | 10:30 | Herdís Pála Pálsdóttir |