Microsoft Teams og OneDrive

Á þessu námskeiði er farið yfir nýjustu útgáfur af Microsoft Teams og OneDrive.

Við byrjum á að skoða OneDrive, þar sem við lærum hvernig það meðhöndlar þínar einkaskrár og gögn. Þá skoðum við hvernig hægt er að nálgast þau hvar og hvenær sem er. Í næsta skrefi förum við yfir Microsoft Teams, þar sem við kynnumst fjölbreyttum samskiptatólum fyrir teymi, varðveislu gagna og samvinnu. Við skoðum einnig hvernig gögn frá OneDrive geta verið aðgengileg í Teams, sem eykur skilvirkni og tengir vinnuumhverfið saman.

OneDrive
Með Microsoft OneDrive gefst tækifæri til að geyma gögn miðlægt, deila þeim með öðrum, nýta okkur 
útgáfustjórnun og margt fleira. Eftir að búið er að vista gögnin í OneDrive má vinna með þau frá mismunandi tækjum ásamt því að geta deilt þeim með innri og ytri aðilum sé það heimilt. 

Yfirferð:

  • OneDrive vs. OneDrive 4Business – Hver er munurinn?
  •  Hvað býður OneDrive uppá?
  • Vistun á gögnum í OneDrive.
  • Samvinna á gögnum í rauntíma.
  • Deiling á gögnum frá OneDrive.
  • Aðgangur að gögnum frá mismunandi tækjum.
  • Hvað er nýtt í OneDrive
  • Bæta við flýtivísun, nýtt deilingarviðmót, stuðningur við Loop og fl.

Teams
Microsoft Teams er öflugt tæki til að auðvelda samskipti innan deilda, sviða eða verkefna. Það gerir  notendum kleift að deila gögnum, taka þátt í fjarfundum, eiga létt spjall (e. chat) og margt fleira. Teams býður upp á nýjan vettvang fyrir samvinnu og einfaldar samskipti innan skipulagsheilda. 

Í hverju teymi er hægt að setja upp rásir sem endurspegla ákveðið skipulag eða umræðu tengda tilteknum verkefnum. Þessar rásir geyma samskipti, gögn, og veita möguleika á að bóka fundi, halda hópspjall og tengja önnur kerfi eða lausnir. Frá spjalli (e. chat) er hægt að eiga samtöl við einstaklinga eða minni hópa, án þess að vera bundinn við tiltekið teymi.

Yfirferð:

  • Hvað er Teams?
  •  Hvað býður það uppá?
  • Umhverfi Teams – Er munur á?
  • PC, MAC, veflægt.
  • Hópar vs. rásir
  • Hvernig stofna á hópa og rásir.
  • Notendur, réttindi – Hvað má?
  • OneDrive vs. SharePoint – geymslusvæði.
  • Aðgengi að öðrum kerfum innan úr Teams
  • Munur á opnum hópum og lokuðum.
  • Hvað er nýtt í Teams?
  • Nýjungar er skjánum er deilt, rásir eru nú með fleiri eiginleikum, lifandi þýðingar og fl.

Hæfniviðmið

Að þekkja muninn á OneDrive og One Drive 4Bussiness

Að þekkja hvernig OneDrive virkar og hvað er hægt að gera er kemur að deilingu gagna, samvinnu o.fl.

Að geta nýtt sér fjölbreytt samskiptartól fyrir teymi, varðveislu gagna og samvinnu með Microsoft Teams

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefni.
Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu. 
Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra. Þátttakendur þurfa að hafa Teams aðgang uppsettan áður en að námskeið hefst. Slóð námskeiðsins verður sent á það netfang sem þátttakandi hefur gefið upp við skráningu.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    8. október 2024 kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur 30. september kl.10.00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Atli Þór Kristbergsson, ráðgjafi og kennari
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Zoom
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað notendum Office 365 pakkans sem vilja nýta sér möguleika hans enn betur.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
08.10.2024Microsoft Teams og OneDrive13:0016:00Atli Þór Kristbergsson