Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað
Góð samskipti eru grunnurinn að vellíðan á vinnustað og starfsánægju. Mikilvægt er að rödd allra heyrist og að starfsfólk upplifi jafnvægi í samskiptum sín á milli.
Á þessu námskeiði verður fjallað um faglega hegðun á vinnustað (e. professional behaviour) og hvernig hægt er að tileinka sér samskipti sem stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu.
Skoðaðar verða leiðir til að auka vellíðan á vinnustað, auka færni í faglegum samskiptum á vinnustað, auka sjálfstraust í samskiptum og auka skilning á eðli viðbragða og hegðunar annarra.
Hæfniviðmið
Að geta gert grein fyrir því hvað fagleg hegðun á vinnustað felur í sér.
Að geta gert grein fyrir eðli ólíkrar hegðunar á vinnustað.
Að geta notað ýmsar leiðir til að styrkja sig í samskiptum á vinnustað til að auka starfsánægju.
Að geta brugðist við erfiðum samskiptum með uppbyggilegum hætti.
Að þekkja hvernig hægt er að þjálfa áræðni (e. assertiveness) í samskiptum.
Fyrirkomulag
Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur taka virkan þátt í námskeiðinu. Æfingar, dæmi og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími22. janúar 2024 kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur 12. janúar kl.10.00.
- Lengd3 klst.
- UmsjónGuðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, MA í Human Resource Management frá University of Westminster og Hildur Halldórsdóttir, mannauðsstjóri Þjóðminjasafns Íslands
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFyrir öll sem vilja auka færni og vellíðan í samskiptum á vinnustað.
- Gott að vitaEingöngu félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
- MatMæting og þátttaka.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
22.01.2024 | Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað | 13:00 | 16:00 | Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir |