Hússtjórnarkerfi - rekstur og viðhald
Nútíma byggingar eru oftar en ekki hlaðnar tæknikerfum af ýmsum toga. Starf umsjónar- og rekstaraðila bygginga/fasteigna hefur því undanfarin misseri tekið stakkaskiptum hvað varðar kröfur um tæknilæsi og meðhöndlun upplýsinga. Eitt öflugasta verkfæri umsjónarmanna í dag er hússtjórnarkerfi en meginmarkmið þess er að stýra notkun, samræma og vakta hin ýmsu tæknikerfi byggingarinnar.
Námskeiðið veitir innsýn í vaxandi mikilvægi tæknilegs rekstrar á opinberum og einkareknum byggingum. Farið verður yfir markmið og verkefni rekstrarsviðs og þau verkfæri og kerfi sem umsjónar- og rekstraraðilar fasteigna/bygginga þurfa að hafa til að geta sinnt starfi sínu á skilvirkan hátt.
Hæfniviðmið
Að geta gert grein fyrir helstu kröfum notanda til tæknikerfa í byggingum.
Að geta útskýrt uppbyggingu hússtjórnarkerfis og helstu tæknikerfa bygginga.
Að geta gert grein fyrir notkunarmöguleikum hússtjórnarkerfis.
Að geta framkvæmt bilanaleit og útskýrt fyrirbyggjandi aðgerðir með hússtjórnarkerfi.
Að þekkja verkferla við eftirlit og geta gert grein fyrir stjórnun orkunotkunar í byggingum.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur.
Hægt að skrá sig á staðnámskeið eða fjarnámskeið (í beinu streymi) með því að haka við "Ég vil skrá mig í fjarnám" í skráningarferlinu.
Helstu upplýsingar
- Tími12. september 2024, kl. 09.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd7 klst.
- UmsjónGuðmundur Rúnar Benediktsson, MSc Rafmagnsverkfræði
- StaðsetningIÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík / Eða í fjarnámi (þá hakað við í skráningarferli)
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurUmsjónar- og rekstraraðilar fasteigna/bygginga, einnig blikksmiðir, vélvirkjar, vélfræðingar og fl.
- Gott að vita
Námskeiðið er aðeins fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða og er þeim að að kostnaðarlausu. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri.
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
12.09.2024 | Hússtjórnarkerfi - rekstur og viðhald | 09:00 | 16:00 | Guðmundur Rúnar Benediktsson |