Sýslumenn | Að róa aðstæður

Það virðist færast í aukana að starfsfólk þjónustustofnana eigi samskipti við fólk sem er á einhvern hátt ósátt og lætur óánægju sína og reiði í ljós við starfsfólkið. Slík hegðun er afar truflandi og getur í sumum tilfellum stigmagnast auðveldlega og skapað þar með öryggisógnun. Ein leið til að lækka spennustigið er að starfsfólkið tileinki sér verklag sem heitir róandi samtalstækni.

Í þessari fræðslustund mun starfsfólk hjá Geðþjónustu Landspítalans ræða um þær meginreglur sem róandi samtalstækni byggir á, hvernig best er að stýra samtalinu inn á jákvæðar brautir og hvað ber að forðast.

Hæfniviðmið

Þátttakendur verði meðvitaðaðri um ógnandi aðstæður

Þátttakendur öðlist aukið öryggi í samskiptum við þjónustuþega í uppnámi

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    16. október 2024, kl. 8.30-10. Skráningu lýkur 15. október kl. 12
  • Lengd
    1.5 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Hrönn Logadóttir og Hilmar Thor Bjarnason
  • Staðsetning
    Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk sýslumannsembætta
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Ingibjörg Hanna Björnsdóttir og Sólborg Alda Pétursdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
16.10.202408:3010:00Guðrún Hrönn Logadóttir og Hilmar Thor Bjarnason