Akra | Gerð rekstraráætlunar með launahluta, vaktavinnustofnun

Í AKRA er hægt að áætla laun einstaklinga og hópa með talsverðri nákvæmni. Hér er sýnt hvernig best er að vinna launaáætlun í AKRA, allt frá því að launaforsendur eru sóttar í ORRA og þar til launaáætlun einstaklinga og/eða hópa skilar niðurstöðum í ársáætlun.

Dæmigerð launaáætlun stofnunar verður unnin í AKRA.

Hæfniviðmið

Að öðlast öryggi og færni til að vinna rekstraráætlun fyrir vaktavinnustofnanir

Fyrirkomulag

Fyrirlestur.

Upptaka verður gerð aðgengileg á „Mínar síður“ eins fljótt og mögulegt er eftir að námskeiðinu lýkur.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    7. október 2024, kl. 13.00 - 14.00
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Ingvi Þór Elliðason
  • Staðsetning
    Vefnámskeið á rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    6.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Eingöngu þau sem sjá um launahluta rekstraráætlana hjá vaktavinnustofnunum
  • Gott að vita

    Þetta námskeið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna getur látið senda reikning á Starfsþróunarsetrið og gefið upp kennitölu þess 500611-0730 sem greiðanda. Athugið að ekki er nóg að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.

    Ef einstaklingur sem skráir sig á námskeiðið er hvorki aðildarfélagi Starfsmenntar né Starfsþróunarsetursins getur viðkomandi beðið um að reikningur verði sendur á stofnunina sem unnið er hjá og gefur þá upp kennitölu stofnunar.

  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
07.10.2024Gerð rekstraráætlunar hjá vaktavinnustofnunum með launahluta13:0014:00Ingvi Þór Elliðason