Dómstólasýslan | Varnarviðbrögð, fyrirlestur

Það er mikilvægt að kunna að bregðast rétt við ef erfiðar og óæskilegar aðstæður sem skapast geta í starfi. Hér verður farið yfir hvernig þekkja má einkenni hegðunar sem gæti leitt til átaka og ofbeldis og hvernig bregðast eigi við á öruggan hátt. Þá verður einnig farið yfir hvernig má koma viðkomandi úr árásarham í jafnvægi. Þetta er fyrsti hluti af af tveimur, fyrsti hluti er fyrirlestur, seinni hlutinn eru æfingar í sal (sér skráning, 24.okt.).  

Hæfniviðmið

Að geta varið sig án þess að valda skjólstæðingi skaða ef til árásar kemur.

Að geta gert grein fyrir einkennum hegðunar sem getur leitt til árása og ofbeldis.

Að geta stýrt skjólstæðingum í árásarham aftur í jafnvægi.

Fyrirkomulag

Þetta er fyrri hluti af af tveimur, fyrsti hluti er fyrirlestur, seinni hlutinn eru æfingar í sal (sér skráning, 24.okt.). Fyrirlesturinn er tekinn upp, upptaka verður sett á Mínar síður á heimasíðu Starfsmenntar og aðgengileg í viku fyrir skráða þátttakendur. 

Helstu upplýsingar

  • Tími
    17. október 2024 kl. 14.00 – 15.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Dieudonné Gerritsen, sensei með svarta beltið
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk dómstólanna
  • Gott að vita
     
  • Mat
    Þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
17.10.2024Varnarviðbrögð14:0015:00Dieudonné Gerritsen