Akra | Gerð rekstraráætlunar fyrir fagstjórnendur

Kynning á áætlanaferlinu í AKRA, allt frá gerð útkomuspár að skilum til ráðuneytis. Sýnd verða ýmis atriði og möguleikar varðandi vinnu við áætlanakerfið samhliða kynningu á ferlinu sjálfu. Námsefnið verður sérstaklega aðlagað að stjórnendum sem stjórna fagstofnunum og hafa lítinn bakgrunn í fjármálum og rekstri.

Efnisþættir:

  • Skilgreining viðfanga og samtalna
  • Útkomuspá
  • Launaáætlun
  • Ársáætlun
  • Skil til ráðuneytis

Hæfniviðmið

Að fagstjórnendur öðlist þekkingu og færni til þess að gera rekstraráætlun Akra

Fyrirkomulag

Fyrirlestur.

Upptaka verður gerð aðgengileg á „Mínar síður“ eins fljótt og mögulegt er eftir að námskeiðinu lýkur.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    14. október 2024, kl. 10.00-11.00
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Ingvi Þór Elliðason
  • Staðsetning
    Vefnámskeið á rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    6.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fagstjórnendur sem koma að gerð rekstraráætlana í áætlanakerfi ríkisaðila, AKRA.
  • Gott að vita

    Þetta námskeið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna getur látið senda reikning á Starfsþróunarsetrið og gefið upp kennitölu þess 500611-0730 sem greiðanda. Athugið að ekki er nóg að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.

    Ef einstaklingur sem skráir sig á námskeiðið er hvorki aðildarfélagi Starfsmenntar né Starfsþróunarsetursins getur viðkomandi beðið um að reikningur verði sendur á stofnunina sem unnið er hjá og gefur þá upp kennitölu stofnunar.

  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Ingibjörg Hanna Björnsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
14.10.2024Gerð rekstraráætlunar fyrir fagstjórnendur10:0011:00Ingvi Þór Elliðason