Reykjanesbær | Öldrun fatlaðs fólks
Það er réttur allra að búa við öryggi á efri árum og geta notið þeirra áhyggjulaust. Þjónusta við aldrað fólk sem býr við fötlun skal vera fjölbreytt og miðuð við þarfir hvers og eins. Þar sem öldrun fólks með þroskahömlun hefst oft fyrr en hjá öðrum verður þjónusta fyrir þann hóp fyrst og fremst að taka mið af mati á aðstæðum og heilsu einstaklinganna en ekki einvörðungu aldri.
Á námskeiðinu er leitast við að dýpka þekkingu þátttakenda á öldrun og öldrunarferli hjá fötluðu fólki. Fjallað verður um einkenni heilabilunar og hvernig sé best að bregðast við.
Hæfniviðmið
Að geta gert grein fyrir öldrunarferli hjá fötluðu fólki.
Að geta gert grein fyrir einkenni á byrjun nokkurra tegunda heilabilunar og hvernig bregðast skuli við henni.
Að geta gert grein fyrir leiðum sem standa fólki með heilabilun til boða.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími15. nóvember 2023, kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeiðið hefst.
- Lengd3 klst.
- UmsjónVibeke Þ. Þorbjörnsdóttir, Þroskaþjálfi, MA í Stjórnun, Fötlunarfræði, NordMag í Öldrunarfræðum.
- StaðsetningTjarnargata 12, 230 Reykjanesbær (Súlur).
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk Reykjanesbæjar
- Gott að vitaNámskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Reykjanesbæ).
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
15.11.2023 | Öldrun fatlaðs fólks | 13:00 | 16:00 | Vibeke Þorbjörg Þorbjörnsdóttir |