Hússtjórnarkerfi - rekstur og viðhald
Nútíma byggingar eru oftar en ekki hlaðnar tæknikerfum af ýmsum toga. Starf umsjónar- og rekstaraðila bygginga/fasteigna hefur því undanfarin misseri tekið stakkaskiptum hvað varðar kröfur um tæknilæsi og meðhöndlun upplýsinga. Eitt öflugasta verkfæri umsjónarmanna í dag er hússtjórnarkerfi en meginmarkmið þess er að stýra notkun, samræma og vakta hin ýmsu tæknikerfi byggingarinnar.
Námskeiðið veitir innsýn í vaxandi mikilvægi tæknilegs rekstrar á opinberum og einkareknum byggingum. Farið verður yfir markmið og verkefni rekstrarsviðs og þau verkfæri og kerfi sem umsjónaraðilar og rekstraraðilar fasteigna/bygginga þurfa að hafa til að geta sinnt starfi sínu á skilvirkan hátt.
Hæfniviðmið
Að geta gert grein fyrir helstu kröfum notanda til tæknikerfa í byggingum.
Að geta útskýrt uppbyggingu Hússtjórnarkerfis og helstu tæknikerfa bygginga.
Að geta gert grein fyrir notkunarmöguleikum hússtjórnarkerfis.
Að geta framkvæmt bilanaleit og útskýrt fyrirbyggjandi aðgerðir með hússtjórnarkerfi.
Að þekkja verkferla við eftirlit og geta gert grein fyrir stjórnun orkunotkunar í byggingum.
Fyrirkomulag
FyrirlesturHelstu upplýsingar
- Tími18. janúar 2024, kl. 09.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd7 klst.
- UmsjónKristján Haukur Flosason
- StaðsetningIÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík / Eða í fjarnámi (þá hakað við í skráningarferli)
- TegundVefnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurUmsjónaraðilar og rekstraraðilar fasteigna/bygginga.
- Gott að vitaNámskeiðið er aðeins fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða og er þeim að að kostnaðarlausu. Aðrir geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri. Hægt að skrá sig á staðnámskeið eða fjarnámskeið (í beinu streymi) með því að haka við "Ég vil skrá mig í fjarnám" í skráningarferlinu.
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
18.01.2024 | Hússtjórnarkerfi - rekstur og viðhald | 09:00 | 16:00 | Kristján Haukur Flosason, sjálfvirkniverkfræðingur |