Sáttamiðlun
Sáttamiðlun er vaxandi aðferðafræði við lausn ágreiningsmála út um allan heim. Sáttamiðlun er m.a. notuð við lausn ágreinings sem upp kemur í daglegu lífi, hvort sem er í viðskiptum, innan fyrirtækja eða fjölskyldna. Í sáttamiðlun er leitast við að aðilar máls komi með beinum hætti að lausn ágreiningsmála í stað þess að þriðji aðili ákveði niðurstöðuna.
Farið verður yfir ferli sáttamiðlunar og þær kröfur sem gerðar eru til sáttamiðlara í störfum sínum. Þá verður litið til þeirra aðferða sem hægt er að beita til að bæta samskipti á milli deiluaðila sem og árangursríkar aðferðir við upplýsingaöflun.
Hæfniviðmið
Að auka færni sína í mannlegum samskiptum
Að öðlast hæfni til að greina raunverulega ástæðu deilumála
Að geta beitt virkri hlustun við úrlausn ágreiningsefna
Að geta beitt spurningatækni til að öðlast skilning á eðli ágreinings
Að öðlast aukið sjálfstraust til þess að takast á við erfið deilumál innan fyrirtækja og þekkja leiðir til að leysa úr þeim til lengri tíma litið.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er vefnám á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleyft að fara yfir efnið á þeim stað og tíma sem hentar.
Eftir skráningu hjá Starfsmennt þarf að bíða eftir næsta virka degi, þá kemur póstur frá Opna Háskólanum í HR sem veitir aðgang að námssvæði námskeiðisins (kennslukerfi Opna háskólans).
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 8. febrúar 2024 en upphafið er valfrjálst
- Lengd1,5 klst.
- UmsjónElmar Hallgríms Hallgrímsson, framkvæmdastjóri hjá Ösp líftryggingarfelagi
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er fyrir öll sem vilja auka færni sína í mannlegum samskiptum, læra að greina eðli ágreiningsmála og beita skapandi hugsun við úrlausn þeirra.
- Gott að vitaEingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Opna Háskólanum í HR.
- MatÁhorf
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
08.02.2024 | Sáttamiðlun | 00:00 | 01:30 | Elmar Hallgríms Hallgrímsson |