Bergrisinn | Skyndihjálp upprifjun

Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum. 

Upprifjun fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiði fyrir tveimur árum eða fyrr.

Meðal atriða sem farið er yfir eru:

  • Aðgerðir á vettvangi 
  • Skoðun og mat
  • Endurlífgun fullorðinna og barna 
  • Losun aðskotahluta 
  • Brunasár 
  • Blæðing 
  • Beinbrot  og liðáverkar
  • Höfuðáverkar 
  • Sálrænn stuðningur
  • Bráð veikindi, s.s. brjóstverkur, bráðaofnæmi, flogaveiki, sykursýki, öndunarerfiðleikar og heilablóðfall

Hæfniviðmið

Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar

Helstu upplýsingar

  • Tími
    18. febrúar 2025 kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Laufey Gissurardóttir , leiðbeinandi í skyndihjálp og þroskaþjálfi.
  • Staðsetning
    Grænumörk 5 (aðalsal), 800 Selfossi
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðeins fyrir fólk sem starfar á Bergrisinn
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
18.02.2025Bergrisinn | Skyndihjálp upprifjun13:0016:00Laufey Gissurardóttir