Bergrisinn | Þjónandi leiðsögn, hópur 1
Þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching) er hugmynda- og aðferðafræði sem byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem samskipti á milli starfsfólks og notenda eru þungamiðjan. Vinátta, umhyggja, tengsl og hvatning eru grundvallaratriði í öllum samskiptum. Skipulag og lausnir byggðar á mannlegum gildum og kærleika eru notaðar til að aðstoða fólk til þess að fá dýpri skilning á samskiptum og daglegum viðfangsefnum. Lögð er áhersla á að nálgast einstaklinginn með alúð, vináttu og umhyggju og hvetja hann til að setja sér markmið og veita aðstoð við að ná þeim.
Í fyrirlestrinum verður farið í grunnstoðir þessarar hugmyndafræði, hvernig hún nýtist í störfum okkar og hvernig hún samtvinnast við þá hugmyndafræði sem bundin er í lög- og mannréttindasáttmála sem Ísland er aðili að.
Hæfniviðmið
Að geta útskýrt og nýtt sér hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verkefni.Helstu upplýsingar
- Tími10. mars 2025 kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd3 klst.
- UmsjónArne Friðrik Karlsson, sérfræðingur
- StaðsetningFélagsheimilið Hlíðskjálf að Suðurtröð 6, 800 Selfoss
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðeins fyrir fólk sem starfar hjá Bergrisanum
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
10.03.2025 | Þjónandi leiðsögn | 13:00 | 16:00 | Arne Friðrik Karlsson |