Excel I
Á þessu námskeiði lærir þú grunninn í Excel.
Þú kynnist grunnverkfærum Excel og notendaviðmótum þess. Ferð yfir grunninn í uppsetningu formúla, t.d. summu, frádrátt, margföldun og deilingu. Þú lærir að stilla vísanir í reiti og skjöl ásamt útlitsmótun gagna. Þú lærir að móta texta, töflur og myndrit í Excel, uppsetningu á haus og fæti og hvernig er best að prenta skjöl.
Hæfniviðmið
Að öðlast grunnfærni í Excel töflureikni.
Fyrirkomulag
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 18. desember 2024 en upphafið er valfrjálst.
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja kynnast Excel og nýta það á markvissan hátt.
- Gott að vita
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
18.12.2024 | Excel I | 10:00 | 10:00 | Bjartmar Þór Hulduson |