Dómstólasýslan | Jákvæðni og vellíðan í lífi og starfi

Góð líðan eða aukin hamingja leiðir til betri heilsu, meiri sköpunar, betri tengsla, langlífis og bættrar frammistöðu. Á námskeiðinu verða kynntar rannsóknir jákvæðrar sálfræði á því hvað einkennir einstaklinga sem ná á farsælan hátt að þroskast og aðlagast ólíkum aðstæðum í lífi sínu. Fjallað verður um hamingjuaukandi leiðir sem eru byggðar á rannsóknum á því hvað eykur vellíðan og hamingju. Einnig verður rætt um hvernig vinnustaðamenning getur ýtt undir hamingju og vellíðan.

Hæfniviðmið

Að auka jákvæðni og gleði í lífi og starfi.

Að geta nýtt ýmsar leiðir til að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    28. febrúar 2024, kl. 14.00 - 15.30. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    1,5 klst.
  • Umsjón
    Ragnhildur Vigfúsdóttir, PCC vottaður markþjálfi og Certified Dare to Lead™ Facilitator
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Zoom
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk dómstólanna
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
28.02.2024Jákvæðni og vellíðan í lífi og starfi14:0015:30Ragnhildur Vigfúsdóttir