SSH | Varnarviðbrögð

Það er mikilvægt að kunna að bregðast rétt við ef erfiðar og óæskilegar aðstæður skapast geta í starfi.

Hér verður farið yfir hvernig þekkja má einkenni hegðunar sem geta leitt til átaka og ofbeldis og hvernig bregðast eigi við á öruggan hátt. Þá verður einnig farið yfir hvernig má koma viðkomandi úr árásarham í jafnvægi.  

Hæfniviðmið

Að geta varið sig án þess að valda skjólstæðingi skaða ef til árásar kemur.

Að geta gert grein fyrir einkennum hegðunar sem getur leitt til árása og ofbeldis.

Að geta stýrt skjólstæðingum í árásarham aftur í jafnvægi.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    28. nóvember 2024, kl. 16.00 - 19.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Felix Högnason, þroskaþjálfi og atferlisfræðingur
  • Staðsetning
    Húsnæði BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Nám ætlað starfsfólki sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnes, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélag
  • Gott að vita

    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélag).

  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
28.11.2024Varnarviðbrögð16:0019:00Felix Högnason