SSH | Varnarviðbrögð

Það er mikilvægt að kunna að bregðast rétt við ef erfiðum og óæskilegum aðstæðum sem skapast geta í starfi. Hér verður farið yfir hvernig þekkja má einkenni hegðunar sem geta leitt til átaka og ofbeldis og hvernig bregðast eigi við á öruggan hátt. Þá verður einnig farið yfir hvernig má koma viðkomandi úr árásarham í jafnvægi.  

Hæfniviðmið

Að geta varið sig án þess að valda skjólstæðingi skaða ef til árásar kemur.

Að geta gert grein fyrir einkennum hegðunar sem getur leitt til árása og ofbeldis.

Að geta stýrt skjólstæðingum í árásarham aftur í jafnvægi.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    17. janúar 2024, kl. 16.00 - 19.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Felix Högnason þroskaþjálfi og atferlisfræðingur
  • Staðsetning
    BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Nám ætlað starfsfólki sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnes og Andrastöðum á Kjalarnesi
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ,  Seltjarnarnesi og Andrastöðum á Kjalarnesi).
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
17.01.2024Varnarviðbrögð16:0019:00Felix Högnason