Akra | Grunnnámskeið
Almenn kynning á Akra áætlunarferlinu og kerfinu. Ætlað nýjum notendum sem ekki hafa áður komið að áætlanagerð og þeim sem vilja hressa upp á minnið.
Helstu efnisættir:
- Ferli áætlunargerðar frá viðfangalíkani að skilum til ráðuneytis
- Farið verður yfir ýmis hagnýt atriði varðandi notkun kerfisins
- Kynning á viðfangalíkaninu, uppbyggingu þess og notkun
- Flýtiskipanir í AKRA
Hæfniviðmið
Að þátttakendur þekki Akrakerfið
Að þátttakendur geti unnið í Akrakerfinu
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og að honum loknum spurningar og svör.
Upptaka verður gerð aðgengileg á „Mínar síður“ eins fljótt og mögulegt er eftir að námskeiðinu lýkur.
Helstu upplýsingar
- Tími23. september 2024, kl. 13.00-14.00. Skráningu lýkur kl. 11.00 sama dag.
- Lengd1 klst.
- UmsjónIngvi Þór Elliðason
- StaðsetningVefnám í rauntíma, kennt á Teams
- TegundStreymi
- Verð6.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNýir notendur Akra kerfisins og þau sem vilja hressa upp á minnið
- Gott að vita
Þetta námskeið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna getur látið senda reikning á Starfsþróunarsetrið og gefið upp kennitölu þess 500611-0730 sem greiðanda. Athugið að ekki er nóg að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.
Ef einstaklingur sem skráir sig á námskeiðið er hvorki aðildarfélagi Starfsmenntar né Starfsþróunarsetursins getur viðkomandi beðið um að reikningur verði sendur á stofnunina sem unnið er hjá og gefur þá upp kennitölu stofnunar.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
23.09.2024 | Almenn kynning á áætlunarferlinu og kerfinu. | 13:00 | 14:00 | Ingvi Þór Elliðason |