Innkaupaskólinn | Grunnnámskeið í opinberum innkaupum

Á námskeiðinu verður fjallað um opinber innkaup, einkum útboð, sem leið til að koma á samningi milli opinberra aðila og fyrirtækja. Um er að ræða inngangsnámskeið þar sem helstu grundvallaratriðum verður gerð góð skil. Fjallað verður um helstu lög og stefnur, meginreglur laga um opinber innkaup, gildissvið laganna og hvernig eigi að leggja mat á hvort innkaup séu útboðsskyld. Þá verður farið yfir hvaða kröfur megi gera í útboðsgögnum og hvernig eigi að leggja mat á framlögð tilboð, einkum hvenær tilboð teljist gild og hvenær megi kalla eftir viðbótarupplýsingum.

Helstu efnisþættir námskeiðisins

  • Markmið opinberra innkaupa, helstu lög og stefnur
  • Meginreglur laga um opinber innkaup
  • Gildissvið laga um opinber innkaup og hvenær stofnast til útboðsskyldu
  • Tæknilýsingar, hæfiskröfur, valforsendur og samningskröfur
  • Mat og val tilboða 

Innkaupaskólinn er námsleið fyrir þau sem koma að opinberum innkaupum hjá ríki, sveitarfélögum og frjálsum félagasamtökum svo sem forstöðumenn, ábyrgðarmenn innkaupa, fjármála- og rekstarstjóra. 

Námsleiðin er unnin í samstarfi við Fjársýslu ríkisins í gegnum samstarfsvettvang Starfsmenntar.

Hæfniviðmið

Að þekkja helstu markmið og sjónarmið sem gilda um opinber innkaup.

Að vita hvenær bjóða þurfi út innkaup.

Að þekkja helstu kröfur sem má gera í útboðum.

Að þekkja hvernig eigi að meta framlögð tilboð.

Fyrirkomulag

Veffyrirlestrar og umræðutími. Upptökur af veffyrirlestrum verða aðgengilegar um viku fyrir umræðutíma og er ætlast til að þátttakendur verði búnir að tileinka sér námsefnið áður en umræður fara fram. Þátttakendur fá tækifæri til að senda inn fyrirspurnir um efni námskeiðsins fyrir umræðutímann.

Upptökur af fyrirlestrum verða aðgengilegar þátttakendum í viku eftir umræðutímann.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Upptökur af fyrirlestrum verða aðgengilegar 2. október. Fyrirspurnir berist kennara fyrir 8. október. Umræðutími á Teams 11. október, kl. 10.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    6 klst.
  • Umsjón
    Stanley Örn Axelsson, sviðsstjóri hjá Fjársýslu ríkisins
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma, urmæðutími á Teams
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    36.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þau sem koma að opinberum innkaupum hjá ríki, sveitarfélögum og frjálsum félagasamtökum.
  • Gott að vita
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
02.10.2024Grunnnámskeið í opinberum innkaupum09:0012:00Stanley Örn Axelsson
11.10.2024Umræðutími10:0012:00Stanley Örn Axelsson