Akra | Gerð rekstraráætlunar með launahluta
Í AKRA er hægt að áætla laun einstaklinga og hópa með talsverðri nákvæmni. Hér er sýnt hvernig best er að vinna launaáætlun í AKRA, allt frá því að launaforsendur eru sóttar í ORRA og þar til launaáætlun einstaklinga og/eða hópa skilar niðurstöðum í ársáætlun.
Unnin verður launaáætlun dæmigerðrar stofnunar í AKRA.
Hæfniviðmið
Að öðlast færni í gerð rekstraráætlunar með launahluta
Fyrirkomulag
Fyrirlestur.
Upptaka verður gerð aðgengileg á „Mínar síður“ eins fljótt og mögulegt er eftir að námskeiðinu lýkur.
Helstu upplýsingar
- Tími30. september 2024, kl. 13.00 - 14.00. Skráningu lýkur kl. 11.00 sama dag
- Lengd1 klst.
- UmsjónIngvi Þór Elliðason
- StaðsetningVefnámskeið á rauntíma, kennt á Teams
- TegundStreymi
- Verð6.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurEingöngu ætlað þeim sem eru ábyrg fyrir gerð rekstraráætlana með launahluta.
- Gott að vita
Þetta námskeið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna getur látið senda reikning á Starfsþróunarsetrið og gefið upp kennitölu þess 500611-0730 sem greiðanda. Athugið að ekki er nóg að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.
Ef einstaklingur sem skráir sig á námskeiðið er hvorki aðildarfélagi Starfsmenntar né Starfsþróunarsetursins getur viðkomandi beðið um að reikningur verði sendur á stofnunina sem unnið er hjá og gefur þá upp kennitölu stofnunar.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
30.09.2024 | Gerð rekstraráætlunar með launahluta | 13:00 | 14:00 | Ingvi Þór Elliðason |