SSH | Kynvitund og fatlað fólk
Á námskeiðinu verður rætt um ýmsar birtingarmyndir kynhegðunar hjá fólki með frávik í taugaþroska. Fjallað verður um með hvaða leiðum við getum frætt og stutt fullorðið fatlað fólk um kynheilbrigði, kynhegðun og ástarsambönd.
Ýmislegt fræðsluefni fyrir fatlað fólk um þetta efni kynnt og skoðað.
Hjálpartæki ástarlífsins kynnt frá Blush.
Hæfniviðmið
Að læra betri kynvitund.
Að auka félagslega færni.
Að stuðla að sjálfseflingu.
Að læra ábyrgð og sjálfsstjórn.
Að auka líkamsvitund.
Að þekkja mörk.
Að þekkja hugtök.
Fyrirkomulag
FyrirlesturHelstu upplýsingar
- Tími5. mars 2025, kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd3 klst.
- UmsjónMaría Jónsdóttir, MA félagsráðgjafi
- StaðsetningVefnám í rauntíma, kennt á Teams
- TegundVefnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNám ætlað starfsfólki sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnes, Andrastöðum á Kjalarnesi og ÁS Styrktarfélag
- Gott að vitaNámskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélag).
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
05.03.2025 | Kynvitund og fatlað fólk | 13:00 | 16:00 | María Jónsdóttir |