Trúnaðarmenn Sameykis | Krefjandi samskipti/aðstæður

Áhersla er lögð á að þátttakendur tileinki sér nytsamlegar leiðir til að takast á við krefjandi samskipti. Unnið er með greiningu á því hvernig framkoma reynist þátttakendum erfiðust og hvers vegna, hvernig þátttakendum er tamt að bregðast við ágengri framkomu og til hvaða árangurs það leiðir. 

 
Lögð er áhersla á:

Styrkleika þátttakenda í ólíkum aðstæðum og leiðir til að temja sér ný viðbrögð og yfirfæra styrkleika frá einum aðstæðum yfir í aðrar – vertu sterki aðilinn! 

Mikilvægi þess að leiða hugann að ástæðum fyrir vandanum t.d. með sjálfsþekkingu og að setja sig í spor einstaklingsins – hvað býr að baki? 

Ýmsar leiðir til að halda jafnvægi og vera lausnarmiðaður í erfiðum aðstæðum – auktu færni þína, sjálfsaga, sjálfsöryggi og vertu sá sem er flinkur í að tala við alla og taka á málum! 

Hvernig má á kurteislegan hátt standa fast á sínu, leiða samtalið á yfirvegaðri braut, setja mörk en sýna um leið skilning – sjálfsstyrkur og rósemi! 

Leiðir til að vernda sjálfan sig gegn ágengum einstaklingum og taka ekki ásakanir persónulega – taktu þetta ekki inn á þig! 

Viðhorf, líta á krefjandi einstaklinga sem áskorun til að þroska eigin samskipta-færni og persónustyrk – reynslubankinn: Þú ert alltaf að læra og styrkjast!


Hæfniviðmið

Að fá innsýn í hegðun sem einkennir krefjandi samskipti

Að öðlast meira öryggi til að bregðast rétt við í ágengri framkomu

Fyrirkomulag

Vinnustofa

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Föstudagur 2. febrúar kl. 9.15-12.15
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Sigríður Hulda Jónsdóttir, MA í náms- og starfsráðgjöf og MBA í stjórnun og viðskiptum frá Háskóla Íslands. Eigandi SHJ ráðgjafar.
  • Staðsetning
    Grettisgata 89, 1. hæð
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Trúnaðarmenn Sameykis
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka.
  • Tengiliður námskeiðs
    Jóhanna Þórdórsdóttir hjá Sameyki og Sólborg Alda Pétursdóttir hjá Starfsmennt

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
02.02.2024Krefjandi samskipti/aðstæður 09:1512:15Sigríður Hulda Jónsdóttir