Bergrisinn | Skyndihjálp I
Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum.
Námskeiðin í skyndihjálp eru þrjú. Á þessu fyrsta námskeiði, Skyndihjálp I, er fjallað um meginatriði og grundvallarreglur skyndihjálpar, endurlífgun og aðskotahlut í öndunarvegi með sérstaka áherslu á t.d fólk í hjólastólum. Einnig er fjallað um viðbrögð við flogaveikiskasti og meðvitundarleysi.
Þegar fólk hefur lokið Skyndihjálp I, II og III hefur það lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp.
Hæfniviðmið
Að geta beitt grunnfærni í skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingarHelstu upplýsingar
- Tími18. febrúar 2025, kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd3 klst.
- UmsjónLaufey Gissurardóttir , leiðbeinandi í skyndihjálp og þroskaþjálfi.
- StaðsetningGrænumörk 5 (aðalsal), 800 Selfossi
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðeins fyrir fólk sem starfar á Bergrisinn
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
18.02.2025 | Skyndihjálp I | 13:00 | 16:00 | Laufey Gissurardóttir |