Akra | Grunnnámskeið

Almenn kynning á Akra áætlunarferlinu og kerfinu. Ætlað nýjum notendum sem ekki hafa áður komið að áætlanagerð og þeim sem vilja hressa upp á minnið. 

Helstu efnisættir:

  • Ferli áætlunargerðar frá viðfangalíkani að skilum til ráðuneytis
  • Farið verður yfir ýmis hagnýt atriði varðandi notkun kerfisins
  • Kynning á viðfangalíkaninu, uppbyggingu þess og notkun
  • Flýtiskipanir í AKRA

Hæfniviðmið

Að þátttakendur þekki Akrakerfið

Að þátttakendur geti unnið í Akrakerfinu

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og spurningar og svör að honum loknum.

Upptaka verður gerð aðgengileg á „Mínar síður“ eins fljótt og mögulegt er eftir að námskeiðinu lýkur.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    25. september 2024, kl. 10.00-11.00
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Ingvi Þór Elliðason
  • Staðsetning
    Vefnámskeið á rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    6.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Nýir notendur Akra kerfisins og þau sem vilja hressa upp á minnið
  • Gott að vita

    Þetta námskeið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna getur látið senda reikning á Starfsþróunarsetrið og gefið upp kennitölu þess 500611-0730 sem greiðanda. Athugið að ekki er nóg að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.

    Ef einstaklingur sem skráir sig á námskeiðið er hvorki aðildarfélagi Starfsmenntar né Starfsþróunarsetursins getur viðkomandi beðið um að reikningur verði sendur á stofnunina sem unnið er hjá og gefur þá upp kennitölu stofnunar.

  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
25.09.2024Almenn kynning á áætlunarferlinu og kerfinu.10:0011:00Ingvi Þór Elliðason