Raki og mygla í húsum 2
Þetta er framhaldsnámskeið um raka og myglu í húsum. Æskilegt er að þátttakendur hafi setið fyrra námskeiðið Raki og mygla í húsum I. Markmið námskeiðsins er að kynna helstu aðferðir við hreinsun á raka- og myglusvæðum. Farið er yfir aðferðir til að meta myglu, mæla raka í byggingarefnum og fara yfir túlkun niðurstaða. Kynntar verða lauslega niðurstöður rannsókna vegna efnanotkunar og annarra aðferða við hreinsun á myglu. Fjallað verður um enduruppbyggingu og verkferla við hreinsun á afmörkuðum rýmum og bent á atriði til umhugsunar við notkun byggingarefna.
Hæfniviðmið
Að þekkja aðferðir til að meta myglu og mæla raka í byggingarefnum.
Að þekkja helstu aðferðir við hreinsun á raka- og myglusvæðum.
Að geta farið yfir niðurstöður rannsókna.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur. Hægt að skrá sig á staðnámskeið eða fjarnámskeið (í beinu streymi) með því að haka við "Ég vil skrá mig í fjarnám" í skráningarferlinu.
Helstu upplýsingar
- Tími6. febrúar 2025, kl. 13.00 - 19.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd6 klst.
- UmsjónSylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og Benjamín Ingi Böðvarsson, byggingatæknifræðingur og húsasmiður
- StaðsetningIÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurByggingarmenn, einnig umsjónar- og rekstraraðilar fasteigna/bygginga
- Gott að vita
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri.
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
06.02.2025 | Raki og mygla í húsum 1 | 13:00 | 19:00 | Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, Benjamín Ingi Böðvarsson |