Gervigreind fyrir venjulegt fólk
Vilt þú læra að skrifa skipanir fyrir ChatGPT sem skila árangri? Finnst þér þú stundum þurfa hjálp við að móta hugmyndir og leysa sköpunargáfuna úr læðingi? Viltu hætta að eyða tíma í verkefni sem þú gætir látið tölvuna sjá um?
Á þessu þriggja tíma námskeiði lærir þú að skrifa áhrifaríkar skipanir fyrir ChatGPT og spara dýrmætan tíma. Kenndar verða aðferðir við að móta skipanir á þann hátt að ChatGPT skili nákvæmlega því sem þú vilt að það skili, það sem kallast á ensku prompt engineering.
Hæfniviðmið
Að geta geta skrifað áhrifaríkar og skilvirkar skipanir í ChatGPT
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og æfingar í tíma. Mikilvægt er að nemendur hafi keypt sér aðgang að ChatGPT 4 áður en námskeiðið hefst.
Ef þátttakandi er þegar skráður með aðgang hjá Opna Háskólanum í HR mun viðkomandi fá póst frá Starfsmennt til að skrá sig á námskeiðið beint hjá þeim en með greiðsluupplýsingum Starfsmenntar.
Helstu upplýsingar
- Tími18. október 2024, kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd3 klst.
- UmsjónGrímur Sæmundsson, BI Ráðgjafi
- StaðsetningOpni Háskólinn HR, Menntavegi 1, 102 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað hinum almenna notanda og er grunnnámskeið þar sem aðal áherslan er á að móta skipanir fyrir ChatGPT.
- Gott að vita
Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Opna Háskólanum í HR.
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
18.10.2024 | Gervigreind fyrir venjulegt fólk | 09:00 | 12:00 | Grímur Sæmundsson |