Laun og vinnutími

Fjallað er um megingrundvöll launaútreikninga, þ.e. vinnutíma starfsmanna. Farið yfir lykilatriði í því efni, s.s. vinnutímaskipulagið, dagvinnutímabil, neysluhlé og starfshlutfall, sem og tengd atriði eins og yfirvinnu, álagsgreiðslur og sérstaka frídaga. Áhersla er lögð á hefðbundna dagvinnu á mánaðarlaunum.

Helstu efnisþættir námskeiðsins eru:

  • Gagnkvæmar skyldur aðila (laun í stað vinnuframlags)
  • Vinnutímaskipulag (dagvinna, vaktavinna, annað)
  • Starfshlutfall
  • Daglegur vinnutími og/eða mánaðarleg vinnuskylda (lykiltölur)
  • Dagvinnutímabil skv. kjarasamningi
  • Betri vinnutími (stytting vinnuvikunnar og matar- og neysluhlé)
  • Yfirvinna og álagsgreiðslur
  • Útköll og eyðuákvæði
  • Sérstakir frídagar
  • Launasetning - Reykjavíkurborg og ríkið (starfsmat og stofnanasamningar)
  • Fæðisfé
  • Persónuuppbætur
  • Ráðningarform/uppsagnarfrestur
  • Veikindaréttur (laun í veikindum)
  • Orlof og fyrning orlofs

Hæfniviðmið

Að kunna skil á helstu reglum um vinnutíma, skipulag hans og önnur atriði sem ráða því hvaða forsendur eru lagðar til grundvallar launaútreikningum.

Að auka færni til að vinna með vinnutímaforsendur dagvinnufólks.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    4. mars 2024 kl. 9 - 12 og 6. mars frá kl. 9 - 11. Skráning þarf að berast tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    5 klst.
  • Umsjón
    Jenný Þórunn Stefánsdóttir, lögfræðingur hjá Sameyki
  • Staðsetning
    Námskeiðið fer fram á Microsoft Teams.
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    30.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem koma að starfsmanna- og kjaramálum.
  • Gott að vita
     
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
04.03.2024Laun og vinnutími09:0012:00Jenný Þórunn Stefánsdóttir
06.03.2024Laun og vinnutími09:0011:00Jenný Þórunn Stefánsdóttir