Áfallamiðuð nálgun á vinnustað

Vilt þú geta komið fram á viðeigandi hátt við skjólstæðinga og/eða samstarfsfólk sem hafa orðið fyrir áföllum í lífinu?
Áfallamiðuð nálgun miðar að því að skapa umhverfi og aðstæður þar sem fólki finnst það öruggt og ekki er ýtt undir áfallaviðbrögð.
Á námskeiðinu verður fjallað um hvað felst í nálgun þar sem ekki er ýtt undir áfallaviðbrögð og hvernig vinnustaðir geta innleitt slíka nálgun.

Umræðuþættir:

  • Hvað er áfallamiðuð nálgun og hvað felst í henni?
  • Hvers vegna áfallamiðuð nálgun?
  • Eðli áfalla og áhrif þeirra
  • Þroskun taugakerfis okkar
  • Mikilvægi tengsla og félagslegra samskipta
  • Hvað felst í áfallamiðaðri nálgun?

Hæfniviðmið

Að öðlast grunnþekkingu á áhrifum áfalla og samskipta á heilsu og velferð og átta sig á algengi óunninna áfalla.

Að geta skilið og tekið tillit til þess hversu yfirgripsmikil áhrif áföll geta haft á upplifun, líðan og hegðun fólks.

Að geta notað mismunandi verkfæri til að skapa umhverfi og aðstæður þar sem allir eru öruggir og ekki er ýtt undir áfallaviðbrögð.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    14. mars 2024, kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Lilja Sif Þorsteinsdóttir, sálfræðingur hjá Heilshugar
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Zoom
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    18.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir öll sem vilja læra hvernig best er að koma fram á viðeigandi hátt við skjólstæðinga og/eða samstarfsfólk sem hafa orðið fyrir áföllum í lífinu.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu aðrir greiða námskeiðagjald.  
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
14.03.2024Áfallamiðuð nálgun á vinnustað09:0012:00Lilja Sif Þorsteinsdóttir