Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað

Góð samskipti eru grunnurinn að vellíðan á vinnustað og starfsánægju. Mikilvægt er að rödd allra heyrist og að starfsfólk upplifi jafnvægi í samskiptum sín á milli.

Á þessu námskeiði verður fjallað um faglega hegðun á vinnustað (e. professional behaviour) og hvernig hægt er að tileinka sér samskipti sem stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu.

Skoðaðar verða leiðir til að auka vellíðan á vinnustað, auka færni í faglegum samskiptum á vinnustað, auka sjálfstraust í samskiptum og auka skilning á eðli viðbragða og hegðunar annarra.

Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir því hvað fagleg hegðun á vinnustað felur í sér.

Að geta gert grein fyrir eðli ólíkrar hegðunar á vinnustað.

Að geta notað ýmsar leiðir til að styrkja sig í samskiptum á vinnustað til að auka starfsánægju.

Að geta brugðist við erfiðum samskiptum með uppbyggilegum hætti.

Að þekkja hvernig hægt er að þjálfa áræðni (e. assertiveness) í samskiptum.

Fyrirkomulag

Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur taka virkan þátt í námskeiðinu. Æfingar, dæmi og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    7. maí 2024 kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur 22. apríl kl.10.00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, MA í Human Resource Management frá University of Westminster og Hildur Halldórsdóttir, mannauðsstjóri Þjóðminjasafns Íslands
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir öll sem vilja auka færni og vellíðan í samskiptum á vinnustað.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst. 
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
07.05.2024Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað09:0012:00Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir