Fræðslunefnd BSRB fékk Fræðslusetrið Starfsmennt til þess að vinna að hönnun námslínu fyrir stjórnir og starfsmenn aðildarfélaga BSRB. Skipaður var stýrihópur sem hefur unnið að áframhaldandi þróun námsskrárinnar og hefur Félagsmálaskóli alþýðu komið til samstarfs varðandi þá þætti sem snúa að sérstökum fagþáttum stéttarfélaga.
Ákveðið hefur verið að bjóða upp á námið fyrir starfsmenn og stjórnir allra stéttarfélaga innan BSRB og ASÍ. Markmið námsins er að efla þekkingu og fagmennsku innan aðildarfélaganna og er áhersla lögð á lýðræðislega virkni, upplýsingamiðlun og eflingu liðsheildar. Ætlunin er að styrkja almenna starfs- og stjórnendahæfni til að geta mætt fjölbreyttum verkefnum og nýjum áherslum í þjónustu við félagsmenn.
Námsleiðin skiptist í 26 sjálfstæð námskeið sem spanna alls 173 klukkustundir. Námskeiðin eru valfrjáls. Í boði verða stök námskeið eða stærri námslotur sem byggðar verða upp í kringum ákveðin þemu. Kennt verður um allt land og verður það auglýst jafnóðum. Skráning fer fram hér á heimasíðu Starfsmenntar.