Félagsmála- og tómstundanám er góður undirbúningur fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna við, skipuleggja eða stjórna frístundastarfi hjá öllum aldurshópum. Starfsvettvangur þeirra sem ljúka félags- og tómstundanámi er einkum félagsmiðstöðvar, íþrótta- og æskulýðsfélög og önnur félagasamtök.
Fræðslusetrið Starfsmennt greiðir innritunar- og einingagjöld í brúarnámið fyrir aðildarfélaga sína og aðildarfélaga Sveitamenntar og Ríkismenntar.
Félagsmála- og tómstundanám - brú
Til að koma til móts við fólk með langa starfsreynslu hefur verið boðið upp á svokallað brúarnám á félagsmála- og tómstundabraut þar sem raunfærni og starfsreynsla er metin til styttingar á námi í samræmi við reglur sem mennta- og menningarmálaráðuneytið setur.Eftirfarandi skilyrði eru sett fyrir inngöngu í brúarnám:
- Að nemandi hafi náð 22 ára aldri.
- Að nemandi hafi a.m.k. 3 ára starfsreynslu og starfi enn við heimaþjónustu eða umönnun aldraðra, sjúkra eða fatlaðra*.
- Að nemandi hafi lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga, sveitarfélaga eða annarra aðila (t.d. starfsnámi stuðningsfulltrúa, grunn- og framhaldsnámskeiði)*.
*Brúarnám miðast við 3ja ára starfsreynslu og ca. 200-240 klst. starfstengd námskeið. Eins eru framhaldskólaeiningar metnar ef áfangar eru þeir sömu eða sambærilegir við þá sem kenndir eru á brautinni. Þau sem ekki hafa 3 ára starfsreynslu þurfa að fara í starfsnám og þau sem ekki hafa námskeið þurfa að taka fleiri einingar til að útskrifast af brúnni.
- Skipulag brúarnáms
- Skipulag náms á félagsmála- og tómstundabraut
- Nánari upplýsingar veita Marín Björk Jónasdóttir marin(hjá)bhs.is og Þórkatla Þórisdóttir thorkatla(hjá)bhs.is.
Rafrænt umsóknareyðublað fyrir brúarnám