Í gáttinni er að finna námskeið sem eru valin í samvinnu við stofnunina. Markmiðið með námskeiðunum er að auka hæfni starfsfólks, bæta frammistöðu, auka sjálfsöryggi þess og starfsánægju ásamt því að bæta þjónustu og samhæfa fagleg vinnubrögð.

Fyrir hverja?
Námskeið sem eru merkt stofnuninni eru aðeins ætluð starfsfólki hennar. Önnur námskeið eru valin úr almennu námsframboði Starfsmenntar.

Hver greiðir?
Sjóðir eða stofnanir greiða fyrir þátttöku á námskeið sem eru merkt stofnuninni. Um önnur námskeið gilda almennar reglur um greiðsluþátttöku.

Hvernig á að skrá sig?

  1. Smelltu á plúsinn eða nafn námskeiðsins.
  2. Smelltu á Upplýsingar og skráning.
  3. Smelltu á Skrá mig.
  4. Skráðu kennitöluna þína og smelltu á Áfram.
  5. Veldu að skrá þig inn með lykilorði eða rafrænum skilríkjum.
  6. Staðfestu skráninguna.

Að þessu loknu berst þér tölvupóstur frá okkur sem staðfestir skráningu þína á námskeið. Tölvupósturinn gæti lent í ruslpóstinum svo kíktu þangað ef þig er farið að lengja eftir staðfestingu. Hafðu endilega samband ef þig vantar aðstoð!

Skoðaðu öll námskeið Starfsmenntar      |      Viltu spjalla við náms- og starfsráðgjafa?

Hvernig getum við byggt upp traust, öryggi og jákvæð tengsl í daglegu starfi? Þetta námskeið kynnir hugmyndafræðina Gentle Teaching og hvernig hún getur stutt starfsfólk í að skapa hlý og styðjandi samskipti. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en Ás styrktarfélag greiðir fyrir aðra.
Hefst:
14. apríl 2026
Kennari:
Arne Friðrik Karlsson
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Hvernig bregðumst við á öruggan og faglegan hátt þegar erfiðar aðstæður skapast í starfi? Þetta námskeið veitir starfsfólki hagnýt verkfæri til að fyrirbyggja átök, halda ró og vernda bæði sig og skjólstæðinga. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en Ás styrktarfélag greiðir fyrir aðra.
Hefst:
28. apríl 2026
Kennari:
Felix Högnason
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Hvernig tryggjum við örugga lyfjagjöf og bregðumst rétt við þegar eitthvað óvænt gerist? Þetta námskeið styrkir þekkingu starfsfólks á lyfjum, áhrifum þeirra og öruggum vinnubrögðum í daglegu starfi. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en Ás styrktarfélag greiðir fyrir aðra.
Hefst:
07. maí 2026
Kennari:
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám