Starf heilbrigðisritara felst m.a. í móttöku og skráningum sjúklinga sem koma í viðtöl og almennum skrifstofustörfum. Fjölbrautaskólinn við Ármúla býður upp á brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara bæði í dagskóla og fjarnámi (dreifnámi). Brúin felur í sér mat á fyrra námi /símenntun og starfsreynslu sem styttir námsbraut heilbrigðisritara á grundvelli eftirfarandi skilyrða:
- Nemandi hafi náð 22 ára aldri.
- Nemandi hafi að minnsta kosti fjögurra ára starfsreynslu sem heilbrigðisritari (eða hjúkrunar- og móttökuritari).
- Nemandi hafi lokið 160 tíma sérhæfðri fræðslu sem nýtist í starfi eða starfstengdum námskeiðum stéttarfélaga eða stofnunar.
Starfsmennt greiðir innritunar- og einingagjöld í heilbrigðisritarabrú fyrir aðildarfélaga sína og aðildarfélaga Sveitamenntar og Ríkismenntar.
Nánari upplýsingar um námið við FÁ veitir Kristrún Sigurðardóttir, kennslustjóri, netfang run(hja)fa.is.
- Um brúarnám heilbrigðisritara
- Um heilbrigðisritarabraut
- Umsóknir sendist til Fjölbrautaskólans við Ármúla, Ármúla 12, 108 Reykjavík. Vinsamlega látið fylgiskjöl fylgja umsókn ásamt upplýsingum um stéttarfélagsaðild.