Launaskólinn er námsleið fyrir launafulltrúa og þau sem koma að kjara- og starfsmannamálum hjá ríki og sveitarfélögum. Það nýtist einnig stjórnendum sem koma að skipulagningu vinnutíma, vilja fá betri innsýn inn í framkvæmd launavinnslu eða auka hæfni sína á sviði starfsmannamála.
Námsleiðin er unnin í samstarfi fjármála- og efnahagsráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga í gegnum samstarfsvettvang Starfsmenntar.
Eftirfarandi þemu eru tekin fyrir:
- Þema I - Opinber vinnumarkaður, ráðning, starfslok og starfsskyldur
- Þema II - Vinnutími og afgreiðsla launa
- Þema III - Fjarvera frá vinnu - launaðar og ólaunaðar fjarvistir
- Þema IV - Mannauður og starfsþróun
- Þema V - Meðferð persónuupplýsinga og skjalastjórnun
- Þema VI - Hlutverk og hæfni launafulltrúans
Þátttakendum stendur til boða áhugasviðsgreining og/eða viðtal við náms- og starfsráðgjafa.
Námskeiðin eru hluti af námsleiðinni Launaskólinn en engin krafa er gerð um að þátttakendur ljúki öllum námskeiðum námsleiðarinnar.
Engin námskeið á döfinni í þessum flokki. Vinsamlegast líttu við síðar.