Í gáttinni er að finna námskeið sem eru valin í samvinnu við stofnunina. Markmiðið með námskeiðunum er að auka hæfni starfsfólks, bæta frammistöðu, auka sjálfsöryggi þess og starfsánægju ásamt því að bæta þjónustu og samhæfa fagleg vinnubrögð.

Fyrir hverja?
Námskeið sem eru merkt stofnuninni eru aðeins ætluð starfsfólki hennar. Önnur námskeið eru valin úr almennu námsframboði Starfsmenntar.

Hver greiðir?
Sjóðir eða stofnanir greiða fyrir þátttöku á námskeið sem eru merkt stofnuninni. Um önnur námskeið gilda almennar reglur um greiðsluþátttöku.

Hvernig á að skrá sig?

  1. Smelltu á plúsinn eða nafn námskeiðsins.
  2. Smelltu á Upplýsingar og skráning.
  3. Smelltu á Skrá mig.
  4. Skráðu kennitöluna þína og smelltu á Áfram.
  5. Veldu að skrá þig inn með lykilorði eða rafrænum skilríkjum.
  6. Staðfestu skráninguna.

Að þessu loknu berst þér tölvupóstur frá okkur sem staðfestir skráningu þína á námskeið. Tölvupósturinn gæti lent í ruslpóstinum svo kíktu þangað ef þig er farið að lengja eftir staðfestingu. Hafðu endilega samband ef þig vantar aðstoð!

Skoðaðu öll námskeið Starfsmenntar      |      Viltu spjalla við náms- og starfsráðgjafa?

Á námskeiðinu verður farið í hvernig hægt er að nýta sér Outlook sem best til tímastjórnunar. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en Skatturinn greiðir fyrir aðra.
Hefst:
15. janúar 2025
Kennari:
Hermann Jónsson
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Vefnám

Fjallað verður um hvernig má draga úr spennu í aðstæðum þar sem þjónustuþegar sýna af sér ógnandi hegðun. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en Skatturinn greiðir fyrir aðra.
Hefst:
12. febrúar 2025
Kennari:
Guðrún Hrönn Logadóttir og Hilmar Thor Bjarnason
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Streymi