Í gáttinni er að finna námskeið sem skipulögð eru í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið með námskeiðunum er að auka hæfni starfsfólks, bæta frammistöðu, auka sjálfsöryggi þess og starfsánægju ásamt því að bæta þjónustu og samhæfa fagleg vinnubrögð.

Fyrir hverja?
Námskeið sem eru merkt SSH eru aðeins ætluð starfsfólki sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Seltjarnesi, Garðabæ og Andrastöðum á Kjalarnesi. Starfsfólk hjá ÁS Styrktarfélagi er einnig velkomið að skrá sig á flest SSH námskeið (nema Innkoma nýliða og Skyndihjálp).

Hver greiðir?
Námskeiðin standa félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða til boða þeim að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.

Hvernig á að skrá sig?

  1. Smelltu á plúsinn eða nafn námskeiðsins.
  2. Smelltu á Upplýsingar og skráning.
  3. Smelltu á Skrá mig.
  4. Skráðu kennitöluna þína og smelltu á Áfram.
  5. Veldu að skrá þig inn með lykilorði eða rafrænum skilríkjum.
  6. Staðfestu skráninguna.

Að þessu loknu berst þér tölvupóstur frá okkur sem staðfestir skráningu þína á námskeið. Tölvupósturinn gæti lent í ruslpóstinum svo kíktu þangað ef þig er farið að lengja eftir staðfestingu. Hafðu endilega samband ef þig vantar aðstoð!

Skoðaðu öll námskeið Starfsmenntar      |      Viltu spjalla við náms- og starfsráðgjafa?

Á þessu námskeiði er farið vel yfir hvernig nýta má eigin styrkleika betur í lífi og starfi. Þátttakendur taka styrkleikapróf viacharacter.com. Niðurstöður prófsins gefa góða mynd af eigin styrkleikum og annarra sem getur nýst vel í samskiptum og samstarfi. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
21. ágúst 2025
Kennari:
Hrefna Guðmundsdóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Streymi

Á námskeiðinu verður fjallað um tengsl fötlunar og geðheilbrigðis. Farið yfir algenga geðræna kvilla hjá fötluðum og hvernig bregðast skuli við því í daglegri umönnun. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
27. ágúst 2025
Kennari:
Guðbjörg Sveinsdóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Á námskeiðinu er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum. Þetta er fyrsta námskeiðið af þremur. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
03. september 2025
Kennari:
Laufey Gissurardóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Þetta námskeið er fyrir allt nýtt starfsfólk. Farið verður yfir málefni sem mikilvægt er að allt starfsfólk skilji og þekki. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
11. september 2025
Kennari:
Ýmsir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Í fyrirlestrinum verður farið í grunnstoðir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar (e. Gentle Teaching), hvernig hún nýtist í störfum okkar og hvernig hún samtvinnast við þá hugmyndafræði sem bundin er í lög- og mannréttindasáttmála sem Ísland er aðili að. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
24. september 2025
Kennari:
Arne Friðrik Karlsson
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Á þessu námskeiði verður fjallað um þróun mannréttindaverndar fatlaðs fólks með áherslu á jafnrétti, ójöfn valdahlutföll, forréttindi og jaðarstöðu. ​Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.
Hefst:
30. september 2025
Kennari:
Helga Baldvins Bjargardóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Streymi

Á þessu námskeiði er fjallað um einhverfu fullorðinna, birtingarmyndir og rétt viðbrögð. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
08. október 2025
Kennari:
Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Þetta námskeið er framhald af Skyndihjálp I. Farið verður yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
16. október 2025
Kennari:
Laufey Gissurardóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Á þessu námskeið verður skoðað hvernig traust og tengslamyndun getur haft áhrif á samskipti sem og velferð og vellíðan einstaklinga. Einnig verður farið yfir mikilvæg þess að einstaklingar geti haft svigrúm og tækifæri til að upplifa tilgang í lífi sínu. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
22. október 2025
Kennari:
Ingibjörg Hildur Stefánsdóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Á námskeiðinu verður fjallað um hugtökin nauðung og þvingun út frá mismunandi sjónarhornum. Einnig verður fjallað um helstu lög og reglur varðandi nauðung í starfi með fötluðum. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
30. október 2025
Kennari:
Ástríður Erlendsdóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Þetta er námskeið fyrir starfsfólk sem verða leiðbeinendur í þjónandi leiðsögn á sinni starfsstöð. Farið er dýpra í hvað þjónandi leiðsögn er og hvað þurfi að hafa í huga. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
03. nóvember 2025
Kennari:
Arne Friðrik Karlsson
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Þátttakendur fá heildræna sýn á umfangi óhefðbundinna tjáskipta og innsýn í nokkrar leiðir í óhefðbundnum tjáskiptum s.s. Boardmaker og Blisstungumálið. Einnig verða kynnt mismunandi tjáskiptaforrit. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
13. nóvember 2025
Kennari:
Halla Harpa Stefánsdóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám

Á námskeiðinu er fjallað um áhrif algengra lyfja, virkni þeirra, einkenni ofskömmtunar og þau atriði sem hafa þarf í huga við lyfjagjafir. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
26. nóvember 2025
Kennari:
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Streymi

Þetta er þriðja og síðasta námskeiðið í námskeiðsröðinni skyndihjálp. Farið verður yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en sveitarfélögin greiða fyrir aðra.
Hefst:
03. desember 2025
Kennari:
Laufey Gissurardóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Staðnám